15. maí 2007 klukkan 19:29
jæja þá er skvísan komin í smíðagallann aftur :)
og það er snilld!!! Geggjað veður búið að vera og fínt að vinna úti...
fór á djammið um helgina... og við stelpurnar fórum á sólon og svo fann kristín allt í einu ekki símann sinn... og ég bara þú hefur bara gleymt honum heima.. og hún bara nei það er búið að stela honum... ég bara nei slök kristin hann er heima...
svo komum við heim og siminn ekki þar.. ég bara úps :(
síðan daginn eftir hringdi kristin í símann sinn og lögreglan svaraði og hún bara what? Þá hafði lögreglan haft afskipti af e-h gaur um kveldið og hann skildi símann eftir hjá þeim!!! Viljiði pæla í láni í óláni :) Geggjað heppin að fá símann aftur hehe
fyndið stuff :)
Josh groban á morgun... það verður gaman að sjá hann.. hann er nú SVOLDIÐ sætur,! :)
síðan er pæling í að fara á darude um helgina... hver er game í það??
Dóra Lind Pálmarsdóttir
11. maí 2007 klukkan 19:23
ohh djöfull var ég svekkt í gær að Ísland komst ekki áfram.. ég var búin að búa til spelt pizzu sem var by the way svaka góð! :) þetta er glatað.. nú verður ekki sami stemmari að horfa á þetta á laugardaginn og hefði verið ef ísland hefði komist áfram..
Bara halda með svíþjóð eða i don't know...
já ég er flutt og búin að koma mér fyrir.. það er svaka fínt, svo á maður eftir að kynnast því hvað það kostar að lifa og kaupa í matinn og svona :)
en þangað til næst adios
Dóra Lind Pálmarsdóttir
07. maí 2007 klukkan 19:30
það gengur bara ágætlega að mála nýja herbergið mitt hjá kristínu lilju :) þetta verður algjör bachelorette paradís þarna hjá okkur hehe :)
það sem á daga mína hefur drifið undanfarið er t.d. þetta:
-Settist ofan á pizzu.... uhumm já! snillingur
- Datt inni á klósetti á hvammstanga fyrir framan mjög marga!
-Vann alla helgina í sundlauginni!!
- Er að byrja í smíða vinnunni aftur... og get ekki beðið
Hahaha verð að segja ykkur... um daginn hringdi e-h númer í mig og ég hringdi til baka og gaurinn á hinni línunni sagði blessuð og ég bara uuiuu hver er þetta?? og hann sagði það.. og ég alveg ha hver er það?? síðan kveikti ég á perunni þá var þetta gaur sem ég fór á eitt deit með fyrir 4 vikum og ég hef ekkert talað við hann eftir það. ekki einu sinni svarað smsunum hans og svo hringir hann bara upp úr þurru og allt í goody! ég var by the way búin að stroka út númerið hans og þess vegna þekkti ég það ekki hehe.. þetta var með vandræðalegustu símtölum sem ég hef átt.. svona getur lífið verið fyndið :)
ingveldur kemur heim á morgun! og ég get ekki beðið!
en jæja ætla drulla mér til stínu að mála :) se ya
Dóra Lind Pálmarsdóttir
03. maí 2007 klukkan 17:28
Jæja það kom loksins að því... Gellan er flogin úr hreiðrinu... eða réttara sagt er að fljúga úr því. ÉG er sem sagt að fara flytja inn til hennar Kristínar FRIKK, sem er þokkalega chilluð gellla og mega international huzzler :)
Ætli ég verði ekki flutt inn um erovision-helgina.. og því verður örugglega fagnað með því að horfa á eurovison með bjór í hendi....mmm... can't wait ;)
Heyrðu skrapp á sveita sveita ball um daginn, á hvammstanga með honum Geirmundi Valtýrsyni.. Hann var bara ágætur karlinn.. svoldið fyndið samt að fara á ball með honum en bara svona meira sveitó-gaman.. Hvammstangi fær svona 7 í einkunn frá mér þar sem Grundarfjörður fær 8,5 :) alltaf best í naflanum :)

Þarna er kallinn sjálfur í action.. en hann var reyndar ekki með þessa svölu harmónikku á tanganum um helgina :)
krúttin mín, saknaði ykkar, skal reyna bæta mig í þessu bloggleysi, love ya
Dóra Lind Pálmarsdóttir
30. mars 2007 klukkan 19:23

Ú mama!! :) Stelpur ég vil einn svona í afmælisgjöf!
´Jæja þá er mín bara 22 ára á sunnudaginn :) Það verður gufa með stelpunum á morgun og svo út að borða og svo djammerí djamm! Þetta verður magnað..
Kom bara með nýja færslu þar sem þessi feiti gaur var ekki alveg að meika þetta lengur hehe
love ya
Dóra Lind Pálmarsdóttir
14. mars 2007 klukkan 12:57


Hérna sjáið þið feitasta mann í heimi... yfir 400 kg! Hver mundi ekki vilja einn svona í rúmið til sín???
Dóra Lind Pálmarsdóttir
07. mars 2007 klukkan 18:30
Long time... Ég, Kristín og Ingibjörg skelltum okkur á Nasa á 90's ball á laugardaginn og það var heavy stuð! Reykur, glowsticks, trylltur dans og sætir strákar!

Við skvísurnar fórum heim um fimm leytið, eftir að hafa komið við á hlölla og bullað í allmörgum í leigubílaröðinni hehe.. Verð að segja þetta var skemmtilegasta leigubílaröð sem ég hef farið í :)
Það er svoooooooo rólegt hjá mér í vinnunni í íþróttahúsinu að ég var gjörsamlega að tryllast í gær... plús ein kerlingin sem vinnur með mér RÖFLAÐI ALLAN daginn og var að gera alla geðveika.. Ég hlakkaði bara til að fara vinna upp á hlölla í dag og það var svaka stuð! Ég og Kristín erum góðar saman, gerum helvíti góða báta

Vá hvað er samt málið með fjölmiðlafárið kringum dauða Önnu Nicole Smith??? Maður heyrir né sér neitt annað en e-h rugl um hana og Howard Stern þessa dagana! Er komin með nett ógeð af því.. Mætti halda að forseti bandaríkjanna hefði dáið en ekki hún..
Anyways heyri í ykkur seinna amigos
Dóra Lind Pálmarsdóttir
02. mars 2007 klukkan 22:13
Dóra Lind Pálmarsdóttir
01. mars 2007 klukkan 17:35
Jæja þá er mín komin heim frá aarhus, þar var:
-Mikill snjór!
-Geðveikt gaman :)
-Verslað
-Drukkið
-Og síðast en ekki síst Borðað!
-Svo hitti ég alla hálvitana mína aftur :) Takk krakkar fyrir frábæra helgi love ya all
Nú er ég sko komin í skyndibitann, ég er byrjuð að vinna með henni Kristínu Lilju upp á Hlölla uppi á Höfða þegar ég er í vaktafríi þannig að ég er bara working all the time nema um fríhelgarnar mínar :) Making money honey

Kem bráðum með myndir frá dk..
þangað til next time
Dóra Lind Pálmarsdóttir
16. febrúar 2007 klukkan 11:25
ein vika og svo Aarhus beibí! :)
ohh ég var búin að skrifa snilldarfærslu en svo hvarf hún bara! OOOOggg ég nenni ekki að skrifa hana aftur :) eg er búin að vera heavy löt að blogga, búið að vera mikið að gera hjá manni..
- Ég og Kristín erum að fara skrifa handrit að kvikmynd og ætlum að dúlla okkur á kveldin við að taka hana upp. Þannig að áheyrnarprufur fyrir hlutverkin verða haldin bráðum. Þeir sem hafa áhuga hringi í Kristínu aðstoðarleikstjóra sími: 865-0710 :)
- Ég á fullu að æfa mig fyrir sund/björgunarpróf í vinnunni, mæti reglulega í sund og syndi af mér rassgatið :)
- Tvöfaldur malibu í ananassafa kostar 1250 kr á Barnum!
- Ugly Betty eru cool þættir
- Það ætti að núka Breiðavík og allt fólkið sem vann þar!
- Sundlaugin í Mosó opnaði ekki í vikunni! :(
- Mamma gaf mér nýjan og cool síma í afmælisgjöf :) (samt á ég ekki afmæli fyrr en 1 apríl)
- Strákar eru frá Mars og Stelpur eru frá Venus
Jæja later :)
Dóra Lind Pálmarsdóttir